Breyting á golfreglum: Hreyfingarlaust golf skilyrði fyrir forgjafarskori
Kylfingar á Íslandi geta framvegis ekki leikið til forgjafar nema leika hreyfingarlaust golf samkvæmt nýrri reglugerð Golfsambands Íslands. Í reglugerðinni er m.a. kveðið á um að hvenær leyfa má kylfingum að bæta legu boltans á vellinum eða hluta hans þannig að vallarmatskerfið virki eðlilega en sú heimild verður mjög takmörkuð.
Í tilkynningu frá GSÍ segir:
„Ávallt skal reynt að taka mið af neðangreindri meginreglu um hreyfingarlaust golf, en ef tímabundnar aðstæður krefjast þess skal gæta meðalhófs og beita þá þeirri aðferð sem gengur styst frá meginreglunni, svo sem:
- að lyfta boltanum og hreinsa hann og leggja niður á sama stað
- eða að lyfta boltanum og setja hann niður innan skorkortslengdar (algeng meginregla á Bretlandi er skorkort eða 6 tommur (15 cm).
Ef þessar aðferðir duga ekki og nauðsynlegt sé að bæta legu boltans um kylfulengd víða eða alls staðar á snöggslegnu almenna svæðinu er spurning hvort völlurinn sé í þannig ástandi að hann sé hæfur til að leikið sé á honum til forgjafar skv. þeim reglum sem R&A hefur sett. Utan þess tímabils sem GSÍ hefur ákveðið að reglur um bætta legu geti gilt, verða golfklúbbar því að afla heimildar frá GSÍ til að fá að skrá skor til forgjafar ef heimila á að leika boltanum frá öðrum stað en hann liggur eftir högg samkvæmt staðarreglu E3.
Leika völlinn eins og hann er
Í frásögn GSÍ segir að það sé grundvallaratriði golfleiksins að leika völlinn eins og komið er að honum og boltanum eins og hann liggur, eins og segir í 1. reglu Golfreglnanna. „Hlutverk GSÍ er að framfylgja Golfreglunum hér á landi. Það gengur ekki lengur að aðrar meginreglur gildi á Íslandi um golfleik, en R&A hefur mælt fyrir um. Enn og aftur er því skorað á golfklúbba á Íslandi að hafa í heiðri þessa meginreglu golfsins og breyta sínum staðarreglum og framkvæmd þannig að verklag sé í samræmi við Golfreglurnar.
Á síðasta ári sendu dómaranefnd og forgjafar- og vallarmatsnefnd Golfsambands Íslands áskorun til golfklúbba um að leggja af staðarreglur eða aðrar reglur þar sem hreyfing golfboltans var leyfð á snöggslegnu svæði ótímabundið allt tímabilið. Ekki er að sjá að þessi hvatning hafi haft mikil áhrif og færslur á almenna svæðinu eru víða heimilar þar sem gras er slegið í brautarhæð eða neðar.
Meira eftirlit frá GSÍ
Golfsamband Íslands og undirnefndir sambandsins, hyggjast framvegis hafa meira eftirlit með að farið sé eftir Golfreglunum og beita viðeigandi viðurlögum sé ekki farið eftir þeim. Í Viðauka A (bls. 80) með Forgjafarreglunum kemur fram að það sé hlutverk golfsambands að ákveða það tímabil sem heimilt er að skrá skor til forgjafar þegar reglur heimila að lega boltans sé bætt (vetrarreglur). Jafnframt ákveður golfsamband upphaf og lok tímabils þar sem skor verður skráð til forgjafar.
Hlutverk golfklúbba er skv. áðurnefndum viðauka A m.a. að hafa eftirlit með aðstæðum á golfvöllum sínum og fresta skráningu skors til forgjafar ef aðstæður eru sérstaklega slæmar. Golfklúbbarnir verða þó fyrst að afla samþykkis golfsambandsins áður en slík ákvörðun er tekin. Þá geta golfklúbbar skv. verklagi nefnda 8. kafla lið E3 í Golfreglunum sett tímabundna staðarreglu um bætta legu golfboltans á almenna svæðinu ef tímabundnar aðstæður vallar krefjast þess. Þessa staðarreglu ber að afturkalla þegar í stað þegar aðstæður hafa batnað. Ekki má beita þessari staðarreglu á þann hátt að brjóti gegn meginreglum Golfreglnanna, svo sem að leyfa hreyfingu boltans úr kylfufari. Staðarreglu um bætta legu ætti heldur ekki að beita annars staðar á golfvellinum, en hennar er þörf, t.d. á stökum brautum þar sem skemmdir eru víða og erfitt að merkja allar skemmdirnar sem grund í aðgerð. Þá er ekki heimilt samkvæmt golfreglunum að leyfa bætta legu eða færslur á flötum.


