Korpubikarinn: Selfyssingurinn lék frábært golf á Korpunni - þrjár jafnar á toppnum
Selfyssingurinn Aron Emil Gunnarsson lék frábært golf á fyrsta keppnisdegi Korpubikarsins í dag. Aron lék 18 holurnar á átta höggum undir pari og var aðeins höggi frá því að jafna valllarmetið.
Reykvískir kylfingar koma í næstu sætum á eftir Aroni. Hákon Örn Magnússon er á -5 og þeir Arnór Tjörvi, Jóhann Frank og Jóhannes Guðmundsson eru allir á -4.
Í kvennaflokki eru þær Fjóla Margrét Viðarsdóttur úr Golfklúbbi Suðurnesja, Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr GR og Auður Bergrún Snorradóttir úr GM allar jafnar á þremur höggum undir pari. Perla og Fjóla háðu harða baráttu um sigurinn á Reykjanesmótinu um þar síðustu helgi sem lauk með sigri Perlu.
Korpubikarinn verður leikinn á þremur dögum og lýkur á sunnudag.
Fjöldi keppenda í karlaflokki eru 72. Neðsti keppandinn var á +28 en það er 36 höggum meira en efsti kylfingurinn, það gera tvö högg að meðaltali á hverri holu.
Keppendur í kvennaflokki eru átján.


