Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Fréttir

Böðvar fór á kostum og varð Íslandsmeistari í holukeppni
Böðvar Bragi Pálsson, Íslandsmeistari í holukeppni á Hlíðavelli 2025.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 23. júní 2025 kl. 22:03

Böðvar fór á kostum og varð Íslandsmeistari í holukeppni

Böðvar Bragi Pálsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur er Íslandsmeistari í holukeppni karla 2025 eftir úrslitaleik við Aron Snæ Júlíusson úr GKG. Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill Reykvíkingsins unga sem sýndi allar sínar bestu hliðar í úrslitaleiknum á Hlíðavelli.

Sigur hans í úrslitaleiknum var sannfærandi en hann var fimm undir pari eftir tíu holur og leiddi þá með fjórum holum. Aron náði því forskoti niður í tvær holur en varð að lokum að sætta sig við tap í viðureigninni þegar Böðvar kláraði dæmið á 16. flöt. Lokatölur 3/2.

„Þetta var svakalegt mót, ég þurfti að hafa fyrir því að komst í 16 manna úrslitin og fór í bráðabana. Svo lenti ég í erfiðum leik á móti Veigari Heiðars í 16 manna úrslitum og gegn Andra Björns í 8 manna úrslitum en báðir leikirnir voru mjög spennandi,“ sagði Böðvar en í viðureigninni við Veigar var hann þrjá niður eftir 13 holur, Böðvar fékk þá þrjá fugla í röð og fór í bráðabana sem endaði á 5. holu þegar Veigar fékk fugl og Böðvar örn.

Örninn 2025
Örninn 2025

Holukeppnisleikirnir.

Feðgarnir fagna sigrinum.

Aron Snær á 13. teig á Hlíðavelli. Að ofan er Böðvar Bragi á 11. teig. Útsýnið víða glæsilegt í Mosó.

Tómas Eiríksson Hjaltesteð, nýkominn úr góðri ferð til Englands endaði í 3. sæti.