Guðrún í toppbaráttuni í Þýskalandi
Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK er í toppbaráttuni eftir 36 holur á German Masters mótinu á LET Evrópumótaröð kvenna, þeirri sterkustu í Evrópu en leikið er á Green Eagle golfvellinum í Þýskalandi. Guðrún er á fjórum undir pari eftir tvo hringi og hefur leikið stöðugt og flott golf, hennar besta á þessu ári.
Guðrún hefur leikið báða hringina á 71 höggi, tvo undir og sýnt mjög stöðuga spilamennsku, fengið sjö fugla og þrjá skolla og hitt allt pör.
Hún er í 7.-8. sæti og verður því í þriðja síðasta ráshópi á morgun, lokadeginum.