Heiðrún Íslandsmeistari í holukeppni
Heiðrún Anna Hlynsdóttir, Golfklúbbi Selfoss er Íslandsmeistari í holukeppni kvenna 2025 eftir sigur á Pamelu Ósk Hjaltadóttur, Golfklúbbi Mosfellsbæjar í úrslitaleik á Hlíðavelli í dag. Leikur þeirra var jafn fram á 15. braut en Heiðrún Anna og vann þá þrjár holur í röð með pari og tveimur fuglum og tryggði sér titilinn á 17. holu.
„Jú, það er búið að vera markmið hjá mér lengi að vinna Íslandsmeistaratitil. Ég er búinn að vera í baráttunni í nokkur ár. Það var gaman og vonandi ekki sá síðasti. Mér hefur gengið mjög vel í vor og sumar og framundan eru stór mót, þar á meðal Íslandsmótið í höggleik sem er næsta markmið,“ segir Selfyssingurinn sem hefur einnig sigrað á síðustu tveimur stigamótum en hún var ekki með í fyrsta mótinu í vor.
Heiðrún lék frábært golf í holukeppnisleikjunum en hún var með næst besta skorið í höggleiknum.
Pamela lék líka mjög vel í holukeppnisleikjunum en varð að játa sig sigraða í lokin í úrslitaleiknum.
Í leik um 3. sætið hafði Akureyringurinn Andrea Ýr Ásmundsdóttir betur gegn Ásdísi Rafnar Steingrímsdóttur úr GR.
Einn af þeim sem fögnuðu með Heiðrúnu í dag var Hlynur Geir Hjartarson, faðir hennar, en hann varð Íslandsmeistari í holukeppni 2008.
Úrslit í holukeppnisleikjunum.
Hlynur Geir, faðir Heiðrúnar, fagnar henni eftir sigurinn í dag.
Heiðrún slær á Hlíðavelli í úrslitaleiknum.
Pamela Ósk Hjaltadóttir lék vel á Íslandsmótinu í holukeppninni og endaði í 2. sæti.