Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Gamalt: Gunnar tryggði sér annan titilinn í Grafarholti
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 28. október 2026 kl. 11:30

Gamalt: Gunnar tryggði sér annan titilinn í Grafarholti

Það má sjá skemmtileg tilþrif á lokadegi Íslandsmótsins í golfi 1967 á Grafarholtsvelli í myndskeiði sem RÚV birtir frá fyrsta ári sjónvarpsins. Gunnar Sólnes frá Golfklúbbi Akureyrar tryggði sér sigurinn með fjögurra högga mun eftir harða keppni við Óttar Yngvason. Þetta var annar titill Gunnars og sjötti titill Akureyrings á sjö árum.

Fyrri hluti mótsins fór fram á Hólmsvelli í Leiru og seinni parturinn var leikinn í Grafarholti sem var þá ekki orðinn 18 holur en það gerðist ári síðar. Sjá myndskeið hér.

Gunnar, með þáverandi Ungfrú Íslands sem kylfusvein í Grafaraholti, vann titilinn í annað skipti en það fyrra var 1961. Magnús Guðmundsson, einnig frá Akureyri, náði ekki að verja titilinn sem hann hafði unnið fjögur ár á undan þar sem hann var við vinnu við uppsetningu á skíðalyftu í Hlíðarfjalli á Akureyri. Í 3. sæti eftir umspil við Ólaf Bjarka Ragnarsson og Gunnar Konráðsson endaði Keflvíkingurinn Þorbjörn Kjærbo en hann gerði sér síðan lítið fyrir og varð Íslandsmeistari næstu þrjú ár á eftir, 1968-1970.

Mótið 1967 var líka sögulegt fyrir þær sakir að þá var keppt í kvennaflokki í fyrsta skipti. Guðfinna Sigurþórsdóttir frá Golfklúbbi Suðurnesja varð fyrsti Íslandsmeistarinn og vann síðan titilinn tvisvar sinnum til viðbótar næstu fimm árin. Kylfingur.is birti viðtal við Guffu og Karen dóttur hennar, sigursælasta kylfing Íslandssögunnar, fyrir Íslandsmótið 2024 í Leiru. Sjá hér.

Það er áhugavert að sjá þessar myndir sem sýna vel gæði flatanna sem voru ekki mikil á þessum tíma, boltinn hoppaði og skoppaði í púttunum. Grafarholtið var í uppbyggingu og golfskálinn nýbyggður af mikilli reisn.

Myndskeið frá Íslandsmótinu 1967 á RÚV.

Gunnar og Óttar takast í hendur að móti loknu. Skjámyndir úr RÚV myndskeiðinu.

Glæsilegur golfskáli í Grafarholti. Að neðan má sjá frétt um mótið sem birti í Vísi.