Bráðabani og annar PGA sigur hjá Smotherman á Bermuda
Bráðabana þurfti til að fá sigurvegara á Butterfield Bermuda mótinu á PGA mótaröðinni um síðustu helgi en þetta var fjórða „haustmót“ mótaraðarinnar 2026. Bandaríkjamaðurinn Austin Smotherman hafði betur á þriðju holu bráðabanans gegn Íranum Seamus Power.
Þeir félagar enduðu báðir 54 holurnar á sextán höggum undir pari. Mótið var stytt í 54 holur vegna veðurs en þeir léku bráðabanann á mánudagsmorgni.
Smotherman er einn af minni spámönnum PGA mótaraðarinnar en hann hafði leikið á 100 mótum áður en hann vann í fyrsta sinn fyrir þremur vikum.
Þessi árangur hjá Íranum var líka mikilvægur því hann var í 103. sæti fyrir þetta mót og aðeins hundrað efstu fá fullan þátttökurétt á PGA mótaröðinni á næstu keppnistíð 2027. Hann hefur sigrað áður á mótinu á Bermuda.
Every shot from Monday's three-hole playoff @Bermuda_Champ between Austin Smotherman and Seamus Power. https://t.co/dGnhiaYgRr
— PGA Tour (@PGATour) October 26, 2026
Lokapúttið hjá Smotherman á Bermuda.
Seamus Power setti þetta fína högg af 70 metrum beint í holu.
Það helsta frá þriðja keppnisdegi sem varð sá síðasti.


