Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

GR í 8. sæti á Evrópumóti golfklúbba
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 25. október 2026 kl. 08:44

GR í 8. sæti á Evrópumóti golfklúbba

Golfklúbbur Reykjavíkur endaði í 8 sæti á Evrópumóti golfklúbba í karlaflokki (European Men’s Club Trophy) en leikið var á Cabot Bordeaux golfsvæðinu í Frakklandi 22.-24. október. Danski klúbburinn Smørum varð Evrópumeistari í þriðja sinn á fjórum árum og varð titilinn frá því í fyrra.

GR lék hringina þrjá á 14 höggum yfir pari, en alls tóku 23 lið þátt í mótinu. Leiknar voru 54 holur og tvö bestu skorin töldu. Í liði GR voru Jóhann Frank Halldórsson, Böðvar Bragi Pálsson og Arnór Tjörvi Þórsson.keppnisdegi.

Heildarskor GR-inga:

Böðvar Bragi Pálsson: 77-70-75, +9

Jóhann Frank Halldórsson: 75-75-74, +11

Arnór Tjörvi Þórsson: 72-74-79, +12

GR tryggði sér þátttökurétt á Evrópumótinu með sigri á Íslandsmóti golfklúbba í 1. deild karla sem fram fór á Strandarvelli á Hellu í ágúst. Þar sigraði GR lið GKG í úrslitaleik, 5–0, og varð Íslandsmeistari annað árið í röð og í 27. skipti í sögu félagsins.

GR hafnaði í sjötta sæti á Evrópumótinu í fyrra en liðið hefur nú lokið keppni á meðal átta efstu liða mótsins annað árið í röð.