Fékk sex fugla á síðustu níu holunum og bjargaði þátttökuréttinum
Bandaríkjamaðurinn Sean Crocker tryggði sér 100. sætið og áframhaldandi þátttökurétt á DP mótaröðinni með ótrúlegum endaspretti á síðasta móti tímabilsins fyrir lokaúrslitin. Crocker fékk sex fugla á síðustu níu holunum og endaði jafn í 34. sæti á Genesis mótinu sem dugði honum til að halda „kortinu“.
Crocker var í vandræðum á fyrri níu holunum í lokahringnum og var líklega kominn með hugann að úrtökumótunum þegar hann fór í gang og fékk fugl á 10. og 11. holu og bætti svo við fjórum til viðbótar með ótrúlegri frammistöðu. Englendingurinn Eddie Pepperell sem var ekki meðal þátttakenda á lokamótinu fylgdist með heima í stofu og varð að sætta sig við 101. sætið. Pepperell sendi Crocker skilaboð á samfélagsmiðlum og óskaði honum til hamingju.
„Þetta var magnað. Ég var augljóslega farinn að hugsa um næstu skref og hvort eiginkonan þyrfti að fara að leita sér að starfi. Þetta eru líklega bestu níu lokaholur sem ég hef leikið á ferlinum,“ sagði Bandaríkjamaðurinn með tárin í augunum í lokin. Hann bjargaði sér með góðri frammistöðu í þremur síðustu mótunum þar sem hann endaði í 13., 15. og 34. sæti.
Fleiri kylfingar voru í svipaðri baráttu eins og Ítalinn Matteo Manassero sem bjargði sér líka með góðri frammistöðu í síðasta mótinu en hann endaði í 98. sæti á stigalistanum.
Stigalistinn á DP.


