Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Úrtökumótin: Sigurður Arnar bætti sig
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 30. október 2026 kl. 16:29

Úrtökumótin: Sigurður Arnar bætti sig

Íslensku kylfingarnir þrír á 2. stigi úrtökumótanna fyrir DP mótaröðina eru allir fyrir neðan 30. sætið eftir 36 holur og þurfa að leika undir pari næstu tvo hringi til að eiga möguleika. Dagbjartur og Ragnar leika á Isla Canela Links vellinum við Huelva en Sigurður Arnar, bróðir Ragnars, keppir á Fontanals í Girona.

Dagbjartur Sigurbrandsson og Ragnar Garðarsson féllu báðir niður listann eftir góða byrjun í fyrsta hring.

Dagbjartur lék annan hringinn á pari, 71 höggi, fékk fimm fugla, þrjá skolla og einn tvöfaldan skolla. Hann er jafn í 34. sæti á -4 en skorið hjá tuttugu efstu er frá -7 upp í -13.

Ragnar lék annan hringinn á þremur yfir pari, 74 höggum og er á einum undir í heildina. Hann er jafn í 48. sæti. Ragnar fékk fjóra skolla og einn fugl á öðrum hringnum.

Skorið á Isla Canela.

Sigurður Arnar bætti sig um fjögur högg frá fyrsta hring og kom inn á 68 höggum í dag, tveimur undir pari. Hann fékk þrjá fugla og einn skolla og er nú jafn í 38. sæti á pari en hann lék á tveimur yfir á fyrsta hring. Skorið er hærra í mótinu hjá Sigurði en félögum hans á Isla Canela.

Skorið á Fontanals.