Fréttir

Guðrún og Ragnhildur báðar úr leik í Frakklandi
Laugardagur 15. apríl 2023 kl. 10:54

Guðrún og Ragnhildur báðar úr leik í Frakklandi

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og Ragnhildur Kristinsdóttir komust ekki í gegnum niðurskurðinn á móti á LET Access mótaröðinni í Frakklandi. Guðrún var á 15 yfir pari og Ragnhildur á 19 yfir. Fjörutíu og fimm efstu komust áfram í lokahringinn.

Leikið er á Terre Blanche vellinum en hann er langur og erfiður og það sést á skori keppenda. LET Access mótaröðin er næst efst í styrkleikaflokki hjá konunu í Evrópu en Guðrún er einnig með takmarkaðan þátttökurétt á LET mótaröðinni, efstu deildinni.