Fréttir

Guðmundur langt frá niðurskurðinum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 28. apríl 2023 kl. 10:11

Guðmundur langt frá niðurskurðinum

Guðmundur Ágúst Kristjánsson komst ekki í gegnum niðurskurðinn á DP Evrópumótaröðinni í Kóreu. Hann átti afleitan annan hring og endaði langt frá niðurskurðarlínunni.

Guðmundur lék líklega einn sinn versta hring í langan tíma. Hann fékk 8 skolla og einn tvöfaldan skolla og aðeins einn fugl. Niðurstaðan níu yfir pari eða 81 högg. 

Hann getur því komið sér til Ítalíu og byrjað að undirbúa sig fyrir næsta mót en þar mun hann leika í næstu viku.