Guðmundur Friðrik Sigurðsson látinn
Guðmundur Friðrik Sigurðsson fyrrverandi formaður Keilis er fallinn frá. Hann var í golfferð á Spáni með vinum sínum og við golfleik þegar hann varð bráðkvaddur.
Guðmundur Friðrik var formaður Keilis á árunum 1998-2003 og sat einnig í stjórn Golfsambands Íslands um árabil fyrir Keili.
kylfingur.is sendir fjölskyldu og öðrum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur.