Golfbolinn - landsmót golfhópa í Kiðjabergi í september
Golfklúbbur Kiðjabergs mun halda nýtt liðamót dagana 4. og 5. september nk. Mótið ber heitið Golfbolinn og er einskonar Landsmót golfhópa. Mótið tekur sér til fyrirmyndar Íslandsmót klúbba og Pollamótið á Akureyri í fótbolta. Einungis 16 lið komast í mótið. Geta hámark verið átta kylfingar en lágmark sex . Í hverri umferð spila sex spila hverju sinni og tveir varamenn þ.e. ef lið eru með hámarksfjölda varamanna.

Í samtali við Kylfing útskýrir Þórður Rafn Gissurarson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Kiðjabergs, hvernig mótið kom til.
„Ég hef farið reglulega með mínum vinahópi að keppa í Pollamótinu á Akureyri sem er fótboltamót í bumbubolta en þetta er árlegur viðburður hjá okkur. Ótrúlega gaman að fara með félögunum, keppa á móti öðrum liðum, skemmta sér og njóta. Það hefur blundað í mér hvort að það væri hægt að búa til golfútgáfu af þessu móti. Það er fullt af golfhópum, karla, kvenna og blandaðra á Íslandi og mér fannst líklegt að það væri vettvangur að halda golfmót þar sem keppt er um hver er besti golfhópur landsins.“
Þórður Rafn heyrði í forsvarsmönnum Bola og 66 Norður sem leist svakalega vel á hugmyndina og eru með Golfklúbbi Kiðjabergs í þessu flotta móti.
Alvöru golfliðamót hefur vantað á Íslandi
Hvernig er leikfyrirkomulagið?
„Það svipar til Íslandsmóts klúbba. Byrjað er á því að kvöldi 3. september, að lið koma saman í kúbbhúsinu, snæða burger og rennandi með því í boði mótsins og dregið er í riðla. Það verður einnig pub quiz í boði þar sem lið keppa um hvaða hópur er gáfaðasti golfhópur landsins.
Eftir það er liðum raðað í fjóra fjögurra liða riðla og spilaðar þrjár umferðir af 9 holu holukeppni m. forgjöf á móti hinum liðunum í riðlinum. Topp tvö liðin í hverjum riðli spila um sæti 1 til 8 og neðri tvö um sæti 9 til 16. Leikirnir eru spilaðir 4. og 5. september. Allt í allt eru þetta sex umferðir, þ.e. sex holukeppnisleikir en síðasta umferðin er 18 holu holukeppni m. forgjöf. Síðasta kvöldið verður lokahóf þar sem verður verðlaunaafhending, dýrindis kvöldverður og skemmtun langt fram á kvöld,“ segir Þórður Rafn.
Fyrir hverja er þetta mót?
„Mótið er í raun fyrir alla kylfinga óháð forgjöf. Hóparnir geta hafa verið stofnaðir fyrir 30 árum eða í síðustu viku. Geta verið kylfingar með +5 í forgjöf eða 36 og þvert á aldur þó svo að við miðum við að liðsmenn séu 20 ára eða eldri. Mótið er góður vettvangur til að mynda nýjan golfhóp sem bætist við þann mikla fjölda golfhópa sem nú þegar eru starfræktir.“
Er Golfbolinn skemmtimót eða fúlasta alvara?
„Þetta er blanda af bæði en þó aðallega skemmtun. Hópur af vinum, vinkonum eða vinafólki að eiga nokkra góða daga saman, spila í móti, kynnast öðrum og loka sumrinu á flottan hátt. Liðið getur t.d. gist í bústað hérna í nágrenninu, skellt sér í pottinn með drykk eftir leiki dagsins og mætt misbratt til leiks morguninn eftir. Þetta er aðallega félagslegt en það eru ákveðin viðmið svo að kylfingar geti tekið þátt. Hámarks vallarforgjöf í mótinu verður 24 fyrir karla og 32 fyrir konur og krafa um að liðsmenn séu með gildandi forgjöf, hafi spilað allavega þrjá golfhringi til forgjafar á þessu ári. Ég get þó lofað því að liðin vilja bera sigur úr býtum en verðlaunin fyrir efstu þrjú sætin verða flott. Einnig verða nándarverðlaun alla daga og mögulega eitthvað meira.“
Hvað munu golfhóparnir keppast um?
„Fyrst og fremst er það montrétturinn að vera besti golfhópur landsins. Það eitt og sér er ekki metið til fjárs. Sigurliðið fær farandbikar og auk þess eru glæsileg verðlaun í boði fyrir efstu þrjú sætin og önnur verðlaun. Verðlaunin koma frá okkur flottu samstarfsaðilum sem eru Boli (Ölgerðin), 66 Norður og fleiri frábær fyrirtæki,“ segir Þórður Rafn.
Hvernig gengur skráning?
„Ég hef heyrt í nokkrum golfhópum sem ég vissi um og talaði við forsvarsmenn þeirra. Óhætt að segja að þetta sló í gegn og nokkrir sem hafa skráð sig strax og aðrir mjög áhugasamir. Hinsvegar gildir fyrstur kemur fyrstur fær. Ef lið eru of lengi að hugsa sig um er hætta á að fá ekki pláss. Við verðum þó með biðlista ef áhugi er fyrir því. Þetta er einfalt, bara senda tölvupóst á mig, [email protected] eða hringja í 486-4495.“
Að lokum, hvað er mótsgjaldið?
„Mótsgjaldið er 30 þúsund krónur á mann þ.e. 180 þúsund krónur m.v. 6 manna lið. Ef það eru aukamenn bætist við 30 þúsund krónur per aukamann. Þetta verður grand mót og alvöru slútt á sumrinu,“ sagði Þórður Rafn að lokum.