Fréttir

Fyrsti Club Car bíllinn afhentur hjá Erninum
Fimmtudagur 20. apríl 2023 kl. 07:37

Fyrsti Club Car bíllinn afhentur hjá Erninum

Örninn tók nýlega við umboði fyrir Club Car golfbíla og afhenti fyrsta bílinn nýlega. Helgi Guðmundsson úr Golfklúbbi Flúða renndi í bæinn og sótti sinn bíl. Snorri Ólafur Jónsson, sölustjóri í Erninum afhenti bílinn og að hans sögn koma fleirri í kjölfarið.

„Loksins er að opnast fyrir eðlilega framleiðslu og sölu vegna Covid og mikillar eftirspurnar á þeim tímum. Við erum einnig með Club Car rafmagns vinnubíla á mjög hagstæðu verði og erum með sýningarbíl á staðnum. Við höfum þetta umhverfisvænt,“ sagði Snorri Ólafur í Erninum.