Fréttir

Erfiður fyrsti hringurinn  í Kóreu
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 27. apríl 2023 kl. 09:40

Erfiður fyrsti hringurinn í Kóreu

Guðmundur Ágúst Kristjánsson náði sér ekki á strik í fyrsta hringnum í Kóreu á DP Evrópumótaröðinni. Hann endaði hringinn á fjórum höggum yfir pari og þarf góðan hring á morgun til ðað komast í gegnum niðurskurðinn.

Guðmundur fékk tvo tvöfalda skolla í röð á 6. og 7. braut og þrjá skolla til viðbótar á næstu fjórum holum. Þrír fuglar litu þó dagsins ljós. Guðmundur hóf leik á 10. braut og endirinn á hringnum var því skrautlegur.

Staðan.

Kylfingur.is ræddi við Guðmund Ágúst fyrir mótið: