Fréttir

Aron Snær í fínum málum eftir fyrsta hring í Danmörku
Aron Snær Júlíusson
Ólafur Pálsson
Ólafur Pálsson skrifar
fimmtudaginn 23. júní 2022 kl. 00:06

Aron Snær í fínum málum eftir fyrsta hring í Danmörku

Fjórir íslenskir keppendur á UNICEF Championship

Aron Snær Júlíusson úr GKG lék vel á fyrsta hring á UNICEF Championship. Aron Snær kom í hús á 70 höggum eða á 2 höggum undir pari Sky vallarins á Lübker Sand í Danmörku. Hann Hann fékk fjóra fugla og tvo skolla á hringnum og situr í 12.-19. sæti.

Fjórir íslenskir keppendur leika á mótinu, sem er hluti af Ecco mótaröðinni og Nordic Golf League. Aron Bergsson sem leikur fyrir Hills Golfklúbbinn í Svíþjóð lék á 75 höggum eða á 3 höggum yfir pari og situr í 55.-65. sæti. Gísli Sveinbergsson úr GK lék á 76 höggum eða á 4 höggum yfir pari og situr í 66.-78. sæti. Hákon Harðarson, sem leikur fyrir Royal Golfklúbbinn í Danmörku náði sér engan veginn á strik og lék á 83 höggum eða á 11 höggum yfir pari vallarins. Hákon situr að loknum fyrsta hring í 124.-128. sæti.

Svíinn Viktor Edin og Christoffer Bring frá Danmörku leiða hópinn á 6 höggum undir pari.

Staðan á mótinu

Okkar menn fara út á annan hring á fimmtudag á eftirfarandi rástímum, á íslenskum tíma:

Aron Snær Júlíusson – 06:50
Gísi Sveinbergsson – 07:10
Hákon Harðarson – 11:50
Aron Bergsson – 12:00