Fjórir Íslendinganna meðal efstu sextán efstu í Þýskalandi þegar mótið er hálfnað
Fjórir íslensku kylfinganna af átta á fyrsta stigi úrtökumótanna fyrir DP Evrópumótaröðina eru meðal sextán efstu á einu af tíu mótanna á Seddiner See golfvellinum í Michendorf í Þýskalandi.
Dagbjartur Sigurbransson, Aron Snær Júlíusson og Ragnar Garðarsson eru á fjórum undir pari jafnir í 11. sæti en Sigurður Arnar Garðarsson er jafn í 16. sæti, höggi á eftir.
Johann Frank Halldórsson og Logi Sigurðsson eru jafnir í 47. sæti á tveimur höggum yfir pari, Hlynur Bergsson er á fjórum yfir pari jafn í 57. sæti og Tómas Eiríksson Hjaltested er á fimm yfir pari, jafn í 60. sæti Allir Íslendingarnir komust í gegnum niðurskurðinn sem var við átta högg yfir pari. Nítján efstu og jafnir komast áfram úr þessu móti á annað stigið.
Leiknar verða 72 holur en nítján efstu og jafnir komast áfram á annað stig úrtökumótanna úr mótinu í Þýskalandi en tíu mót eru haldin fyrir fyrsta stigið. Fjögur mót eru fyrir annað stigið og verða haldin 29. okt til 1. nóvember. Lokaúrtökumótið fer fram 6.-11. nóvember.
Aron Júlíusson -4 (69-71)
Dagbjartur Sigurbrandsson -4 (71-69)
Ragnar Garðarsson -4 (73-67))
Sigurður Arnar Garðarsson -3 (71-70)
Johann Frank Halldórsson +2 (72-74)
Logi Sigurðsson +2 (74-72)
Hlynur Bergsson +4 (76-72)
Tómas Eiríksson Hjaltested +5 (75-74)



