Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Úrtökumótin: Sigurður Arnar í dauðafæri á að komast á lokamótið
Sigurður átti geggjan hring og á góða möguleika á að komast á lokamótið.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 31. október 2026 kl. 16:15

Úrtökumótin: Sigurður Arnar í dauðafæri á að komast á lokamótið

Sigurður Arnar Garðarsson er í dauðafæri að vinna sér þátttökurétt á lokaúrtökumótið fyrir DP mótaröðina en hann lék þriðja hringinn á sjö höggum undir pari og er jafn í 15. sæti en tuttugu efstu komst áfram úr hverju mótanna á 2. stiginu en þau eru fjögur. Dagbjartur á enn góða möguleika á að komast áfram en Ragnar Garðarsson afar litla. Keppt er á fjórum völlum á Spáni.

Sigurður sem byrjaði frekar brösuglega í fyrsta hring (+2) lék annan hringinn á tveimur undir en gerð enn betur í dag og kom inn á -7. Hann fékk skolla á þriðju holu og var þá einn yfir en svo komu sjö fuglar á fjórtán holum, þar af fékk hann fugl á síðustu fimm brautirnar. Glæsilegt golf og eitthvað sem þarf til að komast áfram.

Dagbjartur lék þriðja hringinn á þremur undir pari, 68 höggum og er á sjö undir í heildina, jafn í 31. sæti. Dabbi fékk fimm fugla og tvo skolla á þriðja hringnum. Keppendur sem eru í topp tuttugu eru á þremur höggum betri en Dagbjartur. Hann þarf að spila gott golf á lokahringnum til að komast í topp 20 en Íslandsmeistarinn hefur leikið stöðugt golf og er til alls líklegur.

Ragnar Garðarsson sem byrjaði vel í fyrsta hring hefur ekki náð að fylgja því eftir. Hann lék þriðja hringinn á fjórum yfir pari og er þrjá yfir í heildina og á mjög litla möguleika á að komast í topp 20.

Staðan á Isla Canela

Skorið á Fontanals