Þóra og Hákon meistarar hjá Golfklúbbi Reykjavíkur
Hákon Örn Magnússon og Þóra Sigríður Sveinsdóttir eru klúbbmeistarar Golfklúbbs Reykjavíkur 2026 eftir vel heppnað meistaramót.
Þóra Sigríður lék á 299 höggum, 11 yfir pari og vann með sex högga mun. Ásdís Valtýsdóttir varð önnur á 305 höggum og þriðja varð Margrét Jóna Eysteindóttir á 309 höggum
Hákon Örn leiddi með sjö höggum fyrir lokadaginn en Böðvar Bragi Pálsson saxaði á það forskot þannig að það munaði bara einu höggi þegar þeir stóðu á logateignum á 18. braut. Hákon Örn var ekkert á því að gefa þetta eftir og fékk fugl og tryggði sér sigur á meistaramótinu.

Úrslit úr 4 daga keppnum á meistaramótinu:
50-64 ára konur fgj,0-16,4
- Sigríður Kristinsdóttir, 330 högg
- Júlíana Guðmundsdóttir, 341 högg
- Ásta Óskarsdóttir, 343 högg
50-64 ára karlar fgj.0-10,4
- Frans Páll Sigurðsson, 291 högg
- Jón Karlsson, 297 högg
- Haraldur Þórðarson, 299 högg - vann í bráðabana
2. flokkur kvenna
- Svenný Sif Rúnarsdóttir, 373 högg
- Kristi Jo Jóhannsdóttir, 377 högg
- Berglind Jónsdóttir, 378 högg
2. flokkur karla
- Hreimur Guðlaugsson, 333 högg
- Pétur Kristinsson, 334 högg - vann bráðabana
- Brynjar Guðjónsson, 334 högg
1. flokkur kvenna
- Jenný María Jónsdóttir, 331 högg
- Helga Friðriksdóttir, 336 högg
- Sara Ágústa Sigurbjörnsdóttir, 337 högg
1. flokkur karla
- Stefán Óli Magnússon, 304 högg
- Pétur Steinn Þorsteinsson, 306 högg
- Thomas Ari Arnarsson, 307 högg
Þrír kylfingar slóu draumahöggið í mótinu og einn kylfingur sló ennþá sjaldgjæfara draumahögg:
Ingimar Jónasson - hola í höggi á 6. braut á Sjónum
Hjalti Ævarsson - hola í höggi á 3. braut á Sjónum
Páll Dagbjartsson - hola í höggi á 3. braut á Sjónum
Jóhann Frank Halldórsson - albatross á 11. braut á Ánni




