Þegar 17 þúsund króna RAM-dræverinn sló risunum við í kylfuprófun
Í júlíhefti tímaritsins Golf á Íslandi árið 2003 var ráðist í yfirgripsmikla kylfuprófun á stærstu dræverum þess tíma. Niðurstaða kom á óvart og vakti mikla athygli því ódýrasti og minnst þekkti dræverinn varð efstur. Fjórir vaskir kylfingar – þeir Hlynur, Jón Karl, Ágúst og Björn – fengu það skemmtilega verkefni að bera saman sex af heitustu kylfum markaðarins í samvinnu við sérfræðinga.
Í prófinu voru kylfurnar metnar út frá stöðu/útliti, tilfinningu í höggi og boltaflugi. Á meðal samkeppnisaðila voru þekktir risar á borð við TaylorMade R540, Callaway BBII+, Ping Si3+, Adams Redline og Wilson Deep Red. Flestir þessara drævera kostuðu tugi þúsunda króna, sem þótti töluvert fé árið 2003.
Það var hins vegar RAM FX Ti 440 sem kom öllum í opna skjöldu og stóð uppi sem sigurvegari! Þótt RAM hafi verið ódýrasti valkosturinn og kostað einungis um 17.000 krónur hjá Nevada Bob, hlaut hannflest stig hjá reynsluboltunumm 60 stig af 75 mögulegum. TaylorMade R540 fylgdi fast á hæla hans í 2. sæti með 59 stig og Callaway varð þriðji með 57 stig.
„Ram-inn slær í gegn“
Kylfingarnir voru ósparir á hrósið fyrir litla spámanninn. Ágúst sagði berum orðum: „Ram-inn slær í gegn. Ég hefði ekki trúað því hvað þetta er skemmtileg kylfa.“ Hlynur tók í sama streng og nefndi að kylfan kæmi ótrúlega á óvart í keppni við stóru merkin.
Niðurstaðan varð sú að söluæði greip um sig í kjölfar prófunarinnar. Að sögn Hans Henrikssen hjá Nevada Bob seldust nokkrar sendingar upp á örskömmum tíma og yfir 100 RAM-dræverar flugu út á tveimur vikum einum saman. Þetta er frábært dæmi úr sögunni um að dýrasti búnaðurinn sé ekki alltaf sá eini sem skilar boltanum lengst og beint á braut!
Tímaritið Golf á Íslandi er komið á timarit.is og má sjá hér.




