Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Tekst Rory að verja titilinn á Masters?
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 7. apríl 2026 kl. 06:16

Tekst Rory að verja titilinn á Masters?

Norður-Írinn Rory McIlroy mætir til leiks sem verjandi meistari. Eftir að hafa loksins sigrað á Augusta í fyrra og fullkomnað „Grand Slam“ ferilinn, hvílir nú sú spurning á mörgum hvort honum takist að verja titilinn – nokkuð sem aðeins þrír kylfingar hafa afrekað í sögunni, þeir Jack Nicklaus, Nick Faldo og Tiger Woods.

Efsti maður heimslistans, Scottie Scheffler er ekki efstur hjá veðbönkum en hann á tvo græna jakka (2022-2024) en er þó einn af fjórum sem eru oftast nefndir auk Rorys. Scottie hefur ekki verið í topp tíu á PGA móti síðan í byrjun febúar og þá hefur það vakið athygli að hann hefur ekki verið á keppnisvellinum þremur vikum fyrir Masters. Þeir sem eru auk Rorys og Scottie sem oftast eru nefndir eru Bandaríkjamennirnir Xander Schauffele og Bryson DeChambeau að ógleymdum Spánverjanum Jon Rahm sem vann græna jakkann 2023.

Fleiri frá Norðurlöndum en nokkru sinni fyrr

Í ár verða fleiri kylfingar frá Norðurlöndum en nokkru sinni fyrr eða alls átta. Svíinn Ludvig Åberg hefur leikið vel að undanförnu og talinn líklegur en auk hans er Norðmaðurinn Viktor Hovland einnig nefndur þó hann hafi ekki verið mjög heitur að undanförnu.

Auk þeirra mæta dönsku tvíburarnir Nicolai og Rasmus Højgaard loksins báðir á sama mót, en þeir hafa sýnt frábæra takta á PGA mótaröðinni undanfarið. Auk þess má nefna sænsku kylfingana Alex Norén og Vincent Norrman og þá Kristoffer Reitan frá Noregi og Rasmus Neergaard-Petersen frá Danmörku sem þreyta frumraun sína á Masters.

Nú er ljóst að Tiger Woods mætir ekki til leiks en margir vonuðust eftir því en nú er það alveg út úr myndinni eftir uppákomuna fyrir nokkrum dögum þegar kappinn velti Ranger Rover bíl sínum án þess þó að slasast.

Breytingar á vellinum og nýjungar

Augusta National hættir aldrei að þróast. Fyrir mótið í ár hefur 17. holan verið stytt um tæpa 11 metra sem er áhugavert en einnig hafa breytingar verið gerðar á 11. og 14. braut.