Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Svíinn Lindberg sigraði í sjötugustu tilraun
Ísak Jasonarson
Ísak Jasonarson skrifar
mánudaginn 4. maí 2026 kl. 15:05

Svíinn Lindberg sigraði í sjötugustu tilraun

Svíinn Mikael Lindberg sigraði á sínu fyrsta móti á DP mótaröðinni en þetta var hans 70. mót á ferlinum í efstu deild í Evrópu. Hann var fertugasti Svíinn sem sigrar á mótaröðinni. Lindberg stóð uppi sem sigurvegari á Turkish Airlines mótinu sem fram fór á National vellinum í Belek í Tyrklandi en þar hafa margir Íslendingar leikið í golfferðum.

Fyrir utan vegleg peningaverðlaun (60 millj. kr.) endaði Lindberg efstur á „Asíu-sveiflunni“ en á DP mótaröðinni eru nokkrir kaflar sem teknir eru sér á mótaröðinni en framundan er „Evrópu-sveifla“ þar sem leikið er næstu vikurnar á völlum í Evrópu.

Lindberg stóðst álagið í lokahringnum og fagnaði sigrinum sem mun breyta miklu hjá honum á ferlinum en sigrar á mótum á mótaröðunum stóru opna dyr fyrir kylfinga, s.s. Þátttaka í enn stærri mótum. Lindberg vann sér þátttökurétt á PGA risamótinu, einu af fjórum risamótum ársins en það gerðu líka þeir Bernd Wiesberg frá Austuríki og Bandaríkjamaðurinn Jordan Gumberg en þeir enduðu í 2. og 3. sæti í „Asíu-sveiflunni“.

Lokastaðan.