Fréttir

Stanley, Howell III, Laird og Kang tryggðu sig inn á Opna mótið
Kyle Stanley.
Þriðjudagur 4. júlí 2017 kl. 16:11

Stanley, Howell III, Laird og Kang tryggðu sig inn á Opna mótið

Kyle Stanley, Charles Howell III, Martin Laird and Sunghoon Kang tryggðu sér um helgina sæti á þriðja risamóti ársins, Opna mótinu, sem fram fer seinna í mánuðinum.

Kylfingarnir tryggðu sér sæti í mótinu með góðum árangri á Quicken Loans National en alls fengu fjórir efstu kylfingar mótsins þátttökurétt á þessu virta risamóti.

Stanley stóð uppi sem sigurvegari á Quicken Loans mótinu eftir bráðabana gegn Charles Howell III. Þetta var hans fyrsti sigur í fimm ár á PGA mótaröðinni.

Quicken Loans National mótið var fyrsta mótið af þremur í röð á PGA mótaröðinni sem veita þátttökurétt á Opna mótið sem fram fer á Royal Birkdale golfvellinum 20.-23. júlí.


Martin Laird endaði í þriðja sæti um helgina.

Ísak Jasonarson
[email protected]