Skákmeistarinn Helgi er sá eini sem hefur hefur farið holu í höggi á 9. braut í Grafarholti
Kylfingurinn Helgi Ólafsson er einn sigursælasti skákmaður Íslands og hefur orðið Íslandsmeistari sex sinnum í skák. Helgi varð alþjóðlegur meistari FIDE 1978 og alþjóðlegur stórmeistari 1985. Kappinn er líka góður kylfingur og við fengum hann í spjall um það.
Helgi féll snemma fyrir golfíþróttinni í Eyjum og er duglegur kylfingur en nokkuð vantar þó upp á hæfni hans í golfíþróttinni miðað við hvað hann afrekað í skákíþróttinni.
Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvernig gerðist það?
Ég byrjaði sem kylfusveinn fyrir Gunnlaug Axelsson í Vestmnannaeyjum sumarið 1968. Eftir það fór ég aðeins að fikta við golfið. Árið 1999 voru badminton félagar mínir Gunnar Kristjánsson og Jónas P. Erlingsson a byrja í golfinu og sá fyrrnefndi stofnaði Turbóvélina sem vinur minn Eyjólfur Bergþórsson kallaði alltaf Tatara-lestina. Þá byrjaði golfið fyrir alvöru.
Helstu afrek í golfinu?
Þau eru nú varla mjög merkileg. Ég var einu sinni efstur í kolbrjáluðu veðri eftir fyrsta hring í 2. flokki á Meistaramóti GR sumarið 2011. Svo var ég í lokahollinu í sama móti.
Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum?
Ég held að það sé best sameina þessa spunringu við þá næstu. Ég hef aldrei farið holu í höggi en oft verið mjög nálægt því. Hinsvegar tókst mér a fara „holu í höggi” á 4. braut í Grafarholtinu þegar ég sló af teig og beint upp 9. flöt. Við félagarnir ætluum aldrei að finna boltann en svo leit einhver ofan í holuna sem lá framarlega á flötinni og þar var hann.
(Spurningin sem var sameinuð spurningunni hér að ofan. Hefurðu farið holu í höggi og þá hvar?)
Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með?
Ég myndi sennilega telja tvo fyrrum Íslandsmeistara: Björgvin Þorsteinsson og Þorstein Hallgrímsson.
Hver eru markmið sumarsins nú þegar golftíðin er að hefjst aftur?
Hafa gaman að þessu. Það er svo margt í kringum golfið sem ég hef mikla ánægju af, ekki síst skemmtilegur félagsskapur.
Hvað væri það fyrsta sem þú myndir leiðbeina byrjanda með?
Bera virðingu fyrir leiknum og íþróttin mun endurgjalda margfalt.
Ertu hjátrúarfull/ur hvað varðar golf? Nei.
Hvað er það sem þú þarf mest að bæta í þínum golfleik? Allir þættir. Sennilega er ég bestur í púttunum en þau þarf að æfa stöðugt.
Almennar upplýsingar um kylfinginn Helga:
· Aldur: 69 ára.
· Klúbbur: GR
· Forgjöf: 13,5
· Uppáhaldsmatur: Lambasteik.
· Uppáhaldsdrykkur: Sítrónusafi sem ég blanda sjálfur.
· Uppáhaldskylfingur: Tiger Woods.
· Þrír uppáhaldsgolfvellir: Golfvöllurinn í Vestmannaeyjum er þar í algjörum sérflokki. Síðan þykir mér gaman að spila Oddinn, Hvaleyrina og GR-vellina.
· Þrjár uppáhaldsgolfbrautir á Íslandi: 15 holan í Grafarholtinu, Áin á Korpunni og 17. holan í Eyjum.
· Erfiðasta golfholan: 13. holan í Eyjum.
· Erfiðasta höggið: Ég held að erfiðasta högg hjá flestum kylfingum sé högg nr. 2.
· Ég hlusta á:Heimi Karlsson vin minn a Bylgjunni.
· Besta skor: 78 og 79 á Korpunni og Grabbanumn.
· Besti kylfingurinn: Tiger Woods og Bobby Jones,
Golfpokinn:
· Poki: Ping
· Dræver: Titleist 913
· Brautartré: Titleist
· Járn: Ping i 200
· Fleygjárn: Ping
· Pútter: Ping Anser
· Hanski:Titleist Perma soft
· Skór: Footjoy

Helgi varð Íslandsmeistari í tvíkeppni: skák og golfi.

Helgi lék með þessum skemmtilegu kylfingum á goslokamóti í Eyjum.


