Sigurður Bjarki í stuði í Leirdal - lék annan hringinn á sjö undir pari
Sigurður Bjarki Blumenstein úr Golfklúbbi Reykjavíkur lék glæsilegt golf á öðrum keppnisdegi á Lexus mótinu í Leirdal á GSÍ mótaröðinni og leiðir í karlaflokki á átta höggum undir pari. Karen Lind Stefánsdóttir úr GKG leiðir í kvennaflokki með þremur höggum. Lokahringurinn fer fram á morgun, laugardag.
Sigurður hefur farið mikinn á fyrstu tveimur hringjunum og tók forystu í mótinu eftir frábæran annan hring sem hann lék á sjö undir pari. Hann fékk 8 fugla og einn skolla og kom inn á 64 höggum. Fyrsta hringinn lék hann á 71 höggi, -1. Sigurður hefur fengið ellefu fugla á 36 holum.
Í 2. sæti er Daníel Ísak Steinarsson úr GK á sex undir pari og hefur leikið báða hringina á 68 höggum. Á fjórum undir pari í 3.-4. sæti eru Jóhann Frank Halldórsson úr GR og Kristófer Orri Þórðarson úr GK á fjórum undir pari en Kristófer leiddi eftir fyrsta hringinn á -4 en hann lék á pari í öðrum hring. Fleiri þekktir kylfingar koma í humátt á eftir.
Karen Lind hefur leikið fyrstu tvo hringina á 73 og 72 og er á þremur yfir pari. Hún fékk fimm fugla í röð frá 12.-16. holu á öðrum hring. Karen leiðir með fjórum höggum en í 2.-3. sæti eru Fjóla M. Viðarsdóttir úr Golfklúbbi Suðurnesja og Þóra S. Sveinsdóttur úr GR á +7.



