Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Sigurbjörn bestur Íslendinganna á EM öldunga
Guðmundur, Þórdís, Ragnheiður og Sigurbjörn.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 15. júní 2026 kl. 08:23

Sigurbjörn bestur Íslendinganna á EM öldunga

Sigurbjörn Þorgeirsson úr Golfklúbbi Fjallabyggðar endaði jafn í 25. sæti á Evrópumeistaramóti einstaklinga 50+ sem fram fór á Eléa Golf Club í Kýpur. Þrír aðrir íslenskir kylfingar tók þátt en alls mættu 144 keppendur skráðir til leiks á þessu 31. Evrópumeistaramóti, í flokki karla og kvenna.

Sigurbjörn lék á hringina þrjá á átta höggum yfir pari og hringina þrjá á 76-73-72 höggum.

Guðmundur Rúnar Hallgrímsson úr Golfklúbbi Suðurnesja lék hringina þrjá á fimmtán höggum yfir pari, 79-72-77 höggum, en Suðurnesjakylfingurinn var á sínu fyrsta Evrópumóti. Sigurbjörn hefur verið með nokkur undanfarin ár.

Stephen Creed frá Englandi sigraði á -6 en aðeins fjórir kylfingar enduðu undir pari.

Ragnheiður Sigurðardóttir úr GKG og Þórdís Geirsdóttir tóku þátt í kvennaflokki en komust ekki í gegnum niðurskurðinn.

Ragnheiður lék hringina tvo á 80-87 höggum, + 19.

Þórdís komst ekki heldur í gegnum niðurskurðinn, hún var á 82-89, +23.

Jordane Court frá Ítalíu sigraði í kvennaflokki eftir bráðabana. Hún lék á +2.

Lokastaðan í mótinu.