Sá norski lagði besta kylfing heims í bráðabana
Norðmaðurinn Victor Hovland gerði sér lítið fyrir og vann besta kylfing heims í bráðabana fyrir sigri á Travellers mótinu á PGA mótaröðinni. Hovland og Scottie Scheffler voru jafnir eftir 72 holur og luku leik seint á sunnudagskvöld. Bráðbana þurfti því til að útkljá um sigurvegarinn og þar hafði sá norski betur, setti niður 2,5 metra pútt en Scheffler missti helmingi styttra pútt.
Hovland sigraði á Valspar-meistaramótinu í fyrra og batt þar með enda á tveggja ára sigraþurrð. Hann hefur tvisvar endað á meðal tíu efstu á þessu tímabili en dró sig úr keppni á Memorial-mótinu eftir að hafa ekki komist í gegnum niðurskurðinn á PGA-meistaramótinu. Hann komst heldur ekki í gegnum niðurskurðinn á Opna bandaríska meistaramótinu í þar síðustu viku. Þess á milli náði hann hins vegar þriðja sæti á Opna kanadíska RBC-mótinu, sem var besti árangur hans árið 2026 og í fyrsta skipti sem hann keppti í Kanada.
„Auðvitað, fyrir nokkrum vikum lenti ég í þriðja sæti í Kanada og fannst ég vera á réttri leið en svo skoraði ég hræðilega í síðustu viku og leið bara ekkert sérstaklega vel,“ viðurkenndi Hovland. „Ég átti nokkur virkilega slæm högg en sá miklar framfarir. Þannig að þegar ég kem inn í þessa viku fannst mér ég auðveldlega geta breytt henni í virkilega góða viku.
Ég veit það ekki. Þetta er skrítinn leikur.“
Hovland sagðist hafa einbeitt sér í Travellers vikunni að bætingunni sem hefur orðið í hans leik.
„Um leið og ég finn ákveðna tilfinningu sem ég get treyst og hún skilar nokkuð áreiðanlegu höggi, þá veit ég að ég mun geta skorað nokkuð vel upp frá því. Þannig að ef ég spila á tveimur undir pari, sex undir pari eða níu undir pari, þá er það á vissan hátt ekki það mikilvægasta. Það er þegar ég sé höggin sem ég er að reyna að slá og tekst það, það er það sem gefur mér sjálfstraustið,“ sagði Hovland. „Svo er það allt saman bónus að geta gert það á þessu stigi og fyrir framan allan þennan fjölda.“
Já, norsku stuðningsmennirnir voru áberandi í hópi áhorfenda.
Það kom því ekki á óvart að sjá norska fagnið eftir bráðabanann.
Effort to be better … and kinder ❤️ pic.twitter.com/eYPzg4aIQN


