Ragga í góðu málum - Guðrún höggi frá niðurskurði
Ragnhildur Kristinsdóttir er í 10. sæti á pari, fimm höggum á eftir fyrsta sætinu á móti á LET Access mótaröðinni, þeirri næst sterkustu í Evrópu, í Tékklandi en leikið er á Panorama golfsvæðinu.
Ragga hefur leikið báða hringina á 72 höggum en hún fékk þrjá fugla á síðustu þremur holunum í öðrum hringnum.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir var á meðal keppenda á Hulencort golfvellinum í Belgíu á LET Evrópumótaröð kvenna. Guðrún var höggi frá niðurskurðinum en hún lék 36 holurnar á þremur yfir pari, 72 og 75 höggum.