Poston vann á Memorial og fékk 500 millj. kr.
Memorial mótið á velli Jack Nicklaus er eitt af stórum mótunum á PGA mótaröðinni. Bandaríkjamaðurinn J.T. Poston, einn af minni spámönnunum tryggði sér sigur með frábærum endaspretti og bráðabana og vann sér þátttökurétt í næstu þremur risamótum, þar á meðal Opna bandaríska í þar næstu viku.
Þegar Poston gekk að 14. teig á Muirfield Village var hann í fyrsta sinn ekki með forystu síðan á 17. holu á öðrum hring mótsins. Fjögurra högga forysta sem hann hafði í upphafi lokahringsins var horfin. Hann var kominn þrjú högg yfir par dagsins á meðan allir aðrir voru að sækja í sig veðrið. Mótið var að renna honum úr greipum. Meðal þeirra sem sóttu að honum voru Windham Clart, Tommy Fleetwood og Sam Burns.
Poston náði þremur fuglum á næstu fimm holum og sá síðasti var með 8-járni frá rúmum tveimur metrum á 18. holu á meðan mótshaldarinn Jack Nicklaus fylgdist með æsispennandi keppni. Það leiddi til umspils við Ryan Gerard sem eins og Poston er ekki meðal stærri nafnanna á mótaröðinni. Poston sigraði á annarri holu í bráðabana þegar Gerard missti innan við tveggja metra parpútt.
Poston fékk rúmlegan 500 milljónir í vasann fyrir sigurinn og mætir glaður til bankastjórans síns eftir mótið.
US Open verður á Shinnecock Hills vellinum. Þar getur Scottie Scheffler náð alslemmunni með sigri en hann vantar aðeins US Open í risatitlasafnið sitt til að ná því magnaða afreki að sigra á öllum risamótunum - eitthvað sem Rory Mcilroy gerði eftir Masters í fyrra. Þeir voru báðir nálægt toppbaráttunni á Memorial en náðu ekki að blanda sér almennilega í titilbaráttu á hinum erfiða Nicklaus velli sem var fyrsti völlurinn sem Jack hannaði. Hann nefndi hann eftir uppáhaldsvelli sínum í Evrópum, Muirfield í Skotlandi.


