Fréttir

Perla Sól á stóra sviðinu í Solheim bikarnum
Perla Sól með félögum sínum í Evrópuliðinu með John Solheim, syni Karsten Solheim, upphafsmanni Solheim Cup. Karsten er frægastur fyrir að hafa hannað PING pútterinn.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 10. september 2024 kl. 16:43

Perla Sól á stóra sviðinu í Solheim bikarnum

Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr GR keppti með úrvalsliði Evrópu gegn Bandaríkjunum í Solheim bikar stúlkna (12 til 18 ára) 9. og 10. sept. Bandaríska liðið vann stóran sigur á því evrópska og fékk 14,5 vinninga gegn fjórum. Keppnin fór fram í Arlington í Virginíufylki í Bandaríkjunum og er nokkurs konar undanfari Solheim Cup.

Á fyrri keppnisdeg lék Perla Sól fjórleik með Havana Torstensson frá Svíþjóð og töpuðu þær 4/2.

Perla Sól lék með Louise Uma Landgraf frá Frakklandi í fjórmenningi og endaði leikur þeirra með jafntefli.

Í tvímenningi (singles) á öðrum keppnisdegi lék Perla Sól gegn Jude Lee og vann sú bandaríska leikinn 5/4.

Perla Sól er fyrsti íslenski kylfingurinn sem er valin í úrvalslið Evrópu í þessari keppni þar sem að úrvalslið stúlkna frá Evrópu og Bandaríkjunum mætast.

Perla Sól lék með Evrópuliði stúlkna 2022 á Junior Vagliano Trophy en á mótinu keppa úrvalslið Evrópu gegn liði Stóra Bretlands og Írlands. Evrópuliðið sigraði. Hún varð Íslandsmeistari kvenna 2022 þegar leikið var í Vestmannaeyjum.

Úrslit í Solheim Cup junior 2024.

Perla Sól við setningu mótsins.

Bæði liðin í Solheim Cup junior 2024 með John Solheim.

Perla Sól er fyrsti íslenski kylfingurinn sem leikur á Solheim Cup en lið Bandaríkjanna og Evrópu eru skipuð bestu ungmennunum í golfi.