Röggi skilaði flautunni en ekki kylfunum
Rögnvaldur Hreiðarsson var einn þekktasti körfuboltadómari landsins í þrjátíu ár en hann hætti að handleika körfuboltann og blása í flautuna árið 2021 eftir að hafa dæmt á þriðja þúsund körfuboltaleiki. Hann byrjaði í golfi á svipuðum tíma og hann hóf dómaraferilinn en golfið stundar hann ennþá og af miklum krafti á milli þess sem hann fer höndum um hár manna á rakarastofunni. Röggi er góður kylfingur og spilar oft í viku en kylfingur.is vildi forvitnast meira um það og fyrrverandi dómarinn er næstur á teig.
Hvenær byrjaðir þú í golfi og hvernig gerðist það?
Fyrir rúmlega 30 árum. Tengdaforeldrar minir fyrrverandi bera fulla ábyrgð þar þegar ég í einni af fjölmörgum ferðum í bústaðinn þeirra lét mig hafa það.
Helstu afrek í golfinu? Örugglega einhver verðlaun þangað og hingað en að sigrast á sjálfum sér er hið daglega afrek
Hvað er það neyðarlegasta sem þú hefur lent í á golfvellinum? Hvað hef ég marga dálksentimetra....?
Hefurðu farið holu í höggi og þá hvar? Nei, því miður.
Hver er „frægasti“ kylfingurinn sem þú hefur leikið með? Páll Ketilsson.
Hver voru markmið sumarsins? Að halda sjó. Það gekk eftir.
Mannstu eftir fyrstu leiðbeiningunum sem þú fékkst? Jón Karlsson hlýtur að hafa nefnt það að horfa á boltann. Er enn að vinna með það
Ertu hjátrúarfull/ur hvað varðar golf? Hélt ekki, en þegar ég núna hugsa um það....
Hvað er það sem þú þarf mest að bæta í þínum golfleik? Ákvarðanatökur.
RÖGGI KYLFINGUR
Aldur: 62 ár.
Klúbbur: Keilir.
Forgjöf: 7,6.
Uppáhaldsmatur: Kjet og fiskur í ýmsum útgáfum.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn.
Uppáhaldskylfingur: Sami Walimaki.
Þrír uppáhaldsgolfvellir: Keilir, Oddur. Vestmannaeyjar.
Þrjár uppáhaldsgolfbrautir á Íslandi: 12. braut á Keili, 12. braut á Korpu, 17. holan í Vestmannaeyjum.
Erfiðasta golfholan: 16. braut á Keili
Erfiðasta höggið: Högg tvö á 16. brautinni á Hvaleyrinni.
Ég hlusta á: Kántrý.
Besta skor: 75.
Besti kylfingurinn: Mr. Woods.
Golfpokinn: Titleist.
Dræver: Titleist Tsi3, 9 gráður.
Brautartré: 3 tré, 7 tré og 9 tré , allt Titleist.
Járn: Afar óvænt, Titleist grafít tense sköft, regular.
Fleygjárn: 50, 54 og 58 gráðu Tileist
Pútter: Odyssey.
Hanski: Kirkland.
Skór: Ecco.

Tólfta holan á Hvaleyrinni er ein þriggja brauta sem Röggi Keilismaður heldur upp á.

Finnski kylfingurinn Sami Walimaki á óvæntan aðdáanda á Íslandi.


