Kiðjaberg Gull 24
Kiðjaberg Gull 24

Kylfingur dagsins

Kippa golfguðirnir Tómasi Þór niður á jörðina?
Tómas Þór kampakátur eftir Örninn í Grafarholtinu á dögunum.
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
fimmtudaginn 12. júní 2025 kl. 10:20

Kippa golfguðirnir Tómasi Þór niður á jörðina?

Pumpan fór á fullt þegar glitti í -80

Fjölmiðlamaðurinn fyrrverandi, Tómas Þór Þórðarson, er einn af tugþúsundum Íslendinga sem nýverið hafa tekið ástfóstri við golfíþróttina. Eins og flestir ef ekki allir kylfingar, vill Tómas bæta sig og hefur framgangur hans síðan hann hóf almennilega golfferilinn sumarið 2022 eftir að hafa aðeins komið inn í hermi í árslok 2021, verið lygilegur. Á dögunum náði hann í fyrsta skipti á stuttum golfferli að leika undir 80 höggum. Eftir fyrri níu leit aldeilis ekki út fyrir að methringur væri í uppsiglingu en þarna sást glöggt að kylfingurinn á ekki að gefast upp, allt í einu gerðist eitthvað hjá Tómasi, hann náði t.a.m. erni í Grafarholtinu og var spenntur fyrir allan peninginn þegar hann kom á átjánda teiginn, hann þurfti par til að ná markmiði sínu.
Slegið í Flórens á Ítalíu

Undanfarin ár stýrði Tómas Þór enska boltanum á Símanum en þar áður hafði hann unnið á íþróttadeild Stöðvar 2 Sport. Hann hætti síðasta sumar og gaf sig að pólitíkinni, vinnur í dag fyrir þingflokk Sjálfstæðisflokksins og kann vel við sig í nýju starfi.

„Þetta er mjög gaman, starfið er mjög fjölbreytt en það snýst að mestu um að vera þingmönnum Sjálfstæðisflokksins innan handar og til aðstoðar við að taka góðar ákvarðanir fyrir land og þjóð. Ég sé um upplýsingagjöf og samskipti við fjölmiðla og eins og ég segi, starfið er mjög fjölbreytt og skemmtilegt. Sjónvarpsferilinn er því á ís í bili en ég gat ekki alveg sleppt tökunum af fjölmiðlun, er að tala um boltann og fleira á X-977 með Elvari eins og ég gerði líka á meðan ég var í sjónvarpinu. 

Örninn 2025
Örninn 2025

Minn golfferill hófst ekki að ráði fyrr en veturinn 2021 í golfhermi með vini mínum. Ég hafði farið með honum á golfvöllinn einhverjum árum fyrr en var svo lélegur að ég hét því að reyna þetta sport aldrei aftur. Ég hafði æft handbolta, fótbolta og badminton sem krakki, hætti þessu öllu á seinni hluta unglingsáranna en tók svo badmintonspaðann aftur upp 2019 og hef keppt í annarri deildinni, státa m.a. af Reykjavíkurmeistaratitli.

Badminton-ið er mjög góður grunnur að golfinu myndi ég segja og það virðist vera að einhver bakgrunnur í öðrum íþróttum hjálpi til þegar golfkylfa er tekin í hönd í fyrsta sinn. Í badmintoni þarf að vera með góða samhæfingu handa og fóta og það tengist auðvitað golfinu en ég held að ef íþrótt hafi verið æfð, þá hafi viðkomandi lært betur að taka handleiðslu, á móti því að byrja með báðar hendur tómar ef svo má segja. Vinur minn plataði mig svo með sér í hermi í árslok 2021 og þá gerðist eitthvað, ég náði að slá nokkur ansi góð golfhögg og hugsaði með mér; „þetta er gaman.“

Fljótur að hrynja niður í forgjöf

Tómas Þór helti sér af fullum krafti í golfið sumarið eftir þessa reynslu í golfherminum og fljótlega var hann farinn að sjá forgjafartöluna lækka og er kominn í 12,2 í dag.

„Það gerðist eitthvað þarna í herminum en þó fór ég ekki oftar þann vetur, ég kann miklu betur við mig úti í náttúrunni og klæði mig frekar vel og fer í vetrargolf en spila inni í hermi. Ég byrjaði af fullum krafti sumarið 2022 og endaði það sumar í rúmum 26 í forgjöf. Lækkunin var eðlilega ekki eins hröð sumarið eftir og ég endaði í 18-19 en blessunarlega kom þessi lækkun í byrjun ekki í mótum, ég hefði væntanlega verið sakaður um forgjafarsvindl! Ég hef ekki verið mikill mótakarl en ég hefði líklega unnið átta flugferðir og fengið sautján gjafabréf í hinu og þessu ef ég hefði verið duglegur að mæta í mót fyrstu tvö árin í golfinu! Eins og aðrir kylfingar hef ég lent á vegg en hef unnið mig út úr vandræðunum, ég er mjög taktískur og notaði t.d. ekki dræver fyrstu árin, var bara með fimmu-járnið á teig. Félagarnir gerðu grín af mér, sögðu mér að hætta þessu afa-golfi en ég vildi frekar vera á braut á móti því að slæsa drævin í víti. Ég spái ansi mikið í sveiflunni og ætla mér einfaldlega að ná góðum tökum á þessari yndislegu íþrótt. Á einhverjum tímapunkti hugsaði ég með mér að ég þyrfti að koma mér niður í u.þ.b. fimmtán í forgjöf því þá gæti ég spilað með öllum, bæði byrjendum en líka þeim sem lengra eru komnir. Nú er ég kominn niður fyrir fimmtán og þá hlýtur næsta markmið að vera að komast niður í eins-stafa forgjafartölu en ég lækkaði um 0,8 við methringinn minn um daginn og er kominn niður í 12,2. Það verður fróðlegt að reyna spila á þessari forgjöf á næstunni en það verður bara skemmtileg áskorun, golfguðirnir hljóta að vilja kippa mér niður á jörðina“ segir Tómas Þór.

Á Ramblas á Spáni
Ógleymanlegur methringur

Tómas Þór mun seint gleyma methringnum sínum í Grafarholtinu en sá hringur sýnir öllum kylfingum að það má aldrei gefast upp, það er alltaf hægt að búa sér til nýtt markmið.

„Vindurinn blés nokkuð duglega fyrstu sextán holurnar og byrjun mín lofaði ekki góðu. Ég yfirsló fyrsta grínið, púttaði til baka en það klikkaði og ég fékk skolla. Smellti í annað þríprútt á næstu en náði svo í góðan skalla á þriðju holunni og var því þrjá yfir eftir þessar fyrstu þrjár holur en ég vil ekki vera meira en tvo yfir á þeim tímapunkti. Ég kom til baka með flottum fugli á fjórðu holu og var +3 eftir sex holur, var hreint í skýjunum og hugsaði með mér að næstu þrjár holur væru auðveldar og sá glitta í methringinn en eins og við manninn mælt um leið og maður fór fram úr sér, þrjú double bogey fylgdu og brosið fór af mér!

Við vorum í keppni og ég hugsaði með mér að taka góðar seinni níu, vildi koma upphafshögginu á braut á tíundu og þá byrjaði eitthvað sem ég get varla skýrt út. Ég fór að sulla löngum púttum og var algerlega á eldi. Á fjórtándu missti ég upphafshöggið í kargann hægra megin, tók sjö-una af 140 metrum í mótvindi og var nokkuð brattur, taldi parið vera gefið en viti menn, var ekki boltinn ofan í fyrir erni! Gott par á hinni yndislegu fimmtándu holu en þarna var ég steinhættur að spá í skorinu en það á maður einmitt alltaf að gera, þ.e. að spá ekki í skorinu. Ég reddaði flottu pari á sextándu, fékk fínt par á sautjándu og hugsaði þá með mér að ég þyrfti nú að vita hvernig leikar stæðu, ef ég ætti séns á að spila undir 80! Ég var kominn með 75 högg og par á síðustu holunni myndi koma mér til fyrirheitna landsins en ég og þessi hola erum alls ekki vinir, meðalskorið mitt á henni er líklega 5,2 eða eitthvað! Pumpan fór á fullt, ég hef líklega aldrei verið eins stressaður fyrir upphafshögg og vandaði mig sem aldrei fyrr. Ég sagði við sjálfan mig; „one more swing“ og lét vaða, 230m á milli beggja bunkeranna og 110 metrar eftir. Ég sagði við Frissa liðsfélaga minn að ég væri að fara sjank-a þennan en hann tók það ekki í mál, skipaði mér að taka þrjár góðar æfingasveiflur og þegar ég væri klár, láta vaða. Þetta gekk eftir, boltinn endaði um tvo metra frá holu og birde-púttið rétt geigaði en „tap-in“ par og 79 högg staðreynd. 

Það var ansi sáttur Tómas Þór Þórðarson sem keyrði ekki heim eftir þennan hring úr Grafarholtinu heldur flaug, og lagðist mjög sáttur á koddann og ég hef líklega aldrei sofið eins vel! Þarna sést kannski vel að kylfingurinn á aldrei að gefast upp, það er alltaf hægt að búa sér til nýtt markmið, eiga góðar seinni níu, ná sér í fugl eða bara hvað sem er, maður á að sýna golfguðunum þá virðingu að klára leikinn og þótt illa gangi, er alltaf næsti dagur í golfinu,“ sagði Tómas Þór að lokum.

Með áhugaverðari skorkortum sem sést hafa!