Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Ný tækni sér um sláttinn á golfvellinum á Bíldudal
Mánudagur 18. maí 2026 kl. 11:13

Ný tækni sér um sláttinn á golfvellinum á Bíldudal

Golfklúbburinn á Bíldudal hefur tekið í notkun sjálfvirkan slátturóbóta frá FJDynamics sem mun sinna slætti á golfvellinum í sumar. Róbótinn nýtir háþróað staðsetningar- og skynjarakerfi til að slá völlinn af mikilli nákvæmni og getur unnið sjálfstætt við fjölbreyttar aðstæður. Með þessari lausn er hægt að halda vellinum betur snyrtum allan sólarhringinn á sama tíma og vinnuálag og rekstrarkostnaður minnkar.

Agro ehf. er söluaðili FJDynamics á Íslandi og sér um þjónustu og ráðgjöf hér á landi.

„Það er skemmtilegt að sjá nýja tækni og sjálfvirkar lausnir ryðja sér til rúms á íslenskum golfvöllum, þessi tækni hjálpar minni golfvöllum mikið því margir hverjir eru unnir í sjálfboðavinnu og þá munar um alla aðstoð sem er sjálfvirk — og ekki síst í þessari einstöku náttúrufegurð við Arnarfjörð,“ segir í tilkynningu frá Golfklúbbi Bíldudals.