Mótorhjólakappi spólaði upp „nýja“ holu 17. flötinni á Hvaleyri
Hvaleyrarvöllur fékk óskemmtilega heimsókn nýlega þegar mótorhjólakappi keyrði yfir 17. flöt vallarins og spólaði hressilega og skildi eftir sig veglega holu í flötinni. Rúnar vallarstjóri hefur lagt mikla vinnu í viðgerðir svo flötin verði í lagi þegar völlurinn opnar. Frá þessu er greint á heimsíðu Keilis.
Í pistli á síðunni kemur fram að leysingar og vatnsburður vetrarins hafi einnig reynt á fleiri staði á vellinum eins og glompur. „Nú stendur lokaundirbúningur fyrir opnun sem hæst og vinna starfsmenn dag og nótt, meðal annars við að sanda flatir og brautir í Hrauninu. Sú áhersla sem lögð hefur verið á endurheimt brauta síðustu þrjú ár er farið að skila miklum árangri, sem sést vel á bættum gæðum grassins.
Hvaleyrar- og Sveinskotsvöllur koma vel undan vetri og verður spennandi að sjá hvernig þeir takast á við núverandi kuldakast. Upplýsingar um opnun verða sendar félagsmönnum fljótlega,“ segir í pistlinum en vallarstarfsmenn Keilis tóku ekki frí á baráttudegi verkafólks og unnu við undirbúning opnunar vallarins.
Opnun valla er seinni en í fyrra vegna kuldakasts síðla vetrar. Akureyringar stefna á opnun um miðjan maí, Borgnesingar stefna á opnun á næstu dögum og þá hefur komið fram að vellir Golfklúbbs Reykjavíkur opni ekki fyrr en í síðustu viku maímánaðar. Golfvellir Odds og GKG opna líka í maí en ekki er vitað nákvæmlega hvenær. Staðan á öllum völlum sem hafa ekki opnað nú þegar er metin á hverjum degi en veðrið að undanförnu og næstu daga hefur ekki verið upp á það besta. Vellir sem hafa opnað á sumarflatir eru Leiran og Hellan en svo eru Þorlákshöfn og Sandgerði opnir allt árið.
Traffíkin núna um helgina er ekki mikil á vellina sem eru opnir miðað við skráningu á Mitt Golf. Vindur er nokkur og hann er kaldur. Þeir hörðustu láta sig þó ekki vanta.

Hólmsvöllur í Leiru opnaði á sumardaginn fyrsta.


