Meiri vandræði hjá Gulla í lok fyrsta hrings
Gunnlaugur Árni Sveinsson lauk leik á fyrsta hring á US Open um hádegi í dag og lék hann á fjórtán yfir pari, 84 höggum. Vægast sagt erfið byrjun hjá Íslendingnum og slakasta skorið í mótinu á fyrsta hringnum.
Eftir að hafa lokið leik með frábærum fugli á 14.braut í gærkvöldi fékk okkar maður skell á 15. braut. Sló upphafshögginu út fyrir vallarmörk og hann lauk holunni á þreföldum skolla, 7 höggum. Hann tapaði höggi á 16. og 17. braut en fékk gott par á 18. holu eftir að hafa verið í flatarglopu.
Sannarlega erfiður fyrsti hringur hjá okkar manni á Shinnecock Hills. Golfið mjög óstöðugt og tveir boltar út fyrir vallarmörk. Hann var sjö yfir pari á tveimur brautum. Sýndi góða takta inn á milli. Vonandi gengur betur í næsta hring.



