Mcilroy gaf eftir á þriðja degi - er jafn í efsta sæti
Rory Mcilroy náði ekki að fylgja eftir frábærri spilamennsku fyrstu tvo dagana og endaði þriðja daginn á Masters á höggi yfir pari. Bandaríkjamaðurinn Cameron Young lék á átta höggum begtur og jafnaði við N-Írann. Þeir eru á 11 höggum undir pari. Fleiri fylgja á eftir og von er á spennandi lokadegi.
Rory byrjaði fyrstu holu á skolla og það virtist gefa tóninn hjá þessum magnaða kylfingi sem náði sér ekki á strik og var langt frá sínu besta. Hann er engu að síður enn í toppsætinu en deilir því og margir fylgja í kjölfarið.
Næstu menn sem voru frá sex höggum og meira á eftir honum eftir tvo daga spiluðu margir vel, og því er ljóst að allt getur gerst á lokadegi Masters 2026.
Cameron Young sem sigraði á Players mótinu lék frábærlega, sömuleiðis Scottie Scheffler en þeir léku báðir á 65 höggum, 7 undir pari. Sam Burns sem lék í ráshópi með Rory er á -10 og Írinn Shane Lawry er á -9 í 4. sæti.


