Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Margir óduglegir að laga bolta- og kylfuför
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 29. júlí 2026 kl. 06:03

Margir óduglegir að laga bolta- og kylfuför

Góður félagsmaður í Golfklúbbnum Oddi mætti með skorkort eftir átján holu hring nýlega þar sem hann skráði ekki höggin heldur boltaför á flötum. Niðurstaðan var sorgleg því hann taldi boltaförin sem hann lagaði og þau voru alls 153 eða um 8,5 boltaför að jafnaði á hverri flöt.

Þetta kemur fram á Facebooksíðu klúbbsins. Starfsmaður GO tók dæmi í framhaldinu og sagði að á 11. flöt vallarins hafi hann séð tuttugu boltaför á neðri helmingi flatarinnar um klukkan níu um kvöldið. All margir sem tjáðu sig um þetta sögðust oft gera hið sama, að laga mörg boltaför og einn benti á að það væri góð regla að allir gerðu það.

Í bleytu fyrstu rúmlega tuttugu daga júlímánaðar er ljóst að flatir golfalla á Íslandi hafa verið mýkri og það hefur haft einhver áhrif á þennan fjölda boltafara. Það er þó ljóst að flestir kylfingar geta gert betur og sama má segja um torfuför úti á brautum sem eru of algeng því í hreyfingarlausu golfi, sem stefnt er að, að mestu leyti, er fátt leiðinlegra en að lenda í torfufari.