Fréttir

Magnaður lokakafli tryggði Bhatia sigur á Bay Hill
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 9. mars 2026 kl. 11:32

Magnaður lokakafli tryggði Bhatia sigur á Bay Hill

Bandaríkamaðurinn AkshayBhatia sýndi snilldar tilþrif á síðustu níu holunum á Arnold Palmer mótinu á Bay Hill vellinum í Flórída um helgina. Eftir að hafa verið fimm höggum frá forystusætinu fékk hann fjóra fugla og einn örn og tryggði sér svo sigur í bráðana.

Daniel Berger hafði verið með forystu í mótinu frá fyrsta hring og hann þurfti að bjarga pari á lokaholunni sem hann og gerði með einpútti, til að komast í bráðbana við hinn heita Bhatia. Í honum þurfti hann að játa sig sigraðan á hinni erfiður lokabraut.

Svíinn Ludvig Áberg og Bandaríkjamaðurinn Cameron Young enduðu jafnir í 3.-4. sæti á 12 höggum undir pari.

Lokastaðan.