Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

 Magnaður árangur hjá Óliver Elí sem sigraði í Skotlandi - vann í bráðabana á 37. holu
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 15. ágúst 2026 kl. 16:37

Magnaður árangur hjá Óliver Elí sem sigraði í Skotlandi - vann í bráðabana á 37. holu

Keiliskylfingurinn Óliver Elí Björnsson sigraði á The R&A Boys’ Amateur Championship, Opna breska áhugamannamót pilta 18 ára og yngri en það er eitt stærsta unglingamóti heims. Hann lagði sænska kylfinginn Ludwig Libera í bráðabana á 37. holu eftir spennuþrungar 36 holur þar sem þeir skildu jafnir.

Kapparnir voru jafnir í skemmtilegum leik eftir 18 holur. Svíinn virtist svo vera að sigla titlinum í höfn þegar hann leiddi með þremur holum þegar sex holur voru eftir. En nei, Íslendingurinn vann 13., 15. og 17. og þeir luku leik jafnir eftir 36 holur.

Á fyrstu holu í bráðbana fékk okkar maður fugl og innsiglaði sigurinn á þessu fornfræga golfmóti, 18 ára og yngri. Hann gerði það sama í undanúrslitum, lagði þá Evrópumeistarann í bráðbana.

„Eftir opnunarhringinn ákvað ég að leika eins ákveðið og ég gat og það gekk vel. Þetta er í fyrsta skipti sem ég tek þátt í þessu móti og ég er afar stoltur að vera fyrsti Íslendingurinn að komast í úrslit,“ sagði Keiliskappinn ungi í morgun, rétt áður en hann fór á teig til að mæta Svíanum.

Sigurvegari mótsins fær meðal annars þátttökurétt í Opna breska áhugamannamótinu og kemst beint í lokaúrtökumót fyrir The Open.

Úrslitahringurinn.