Lopez í golfferð á Íslandi
Einn sigursælasti kvenkylfingur sögunnar, Nancy Marie Lopez er í golfferð á Íslandi með 50 konum að því er fram kemur á Facebooksíðu Brautarholts. Nancy sem er nú 69 ára, vann 48 LPGA golfmót á ferlinum og þar af 3 risamót. Einn af völlunum sem hún og hópurinn heimsækir er Brautarholtið.
Ekki er vitað nánar um ferð golfhópsins og Nancy en hún gerðist atvinnukylfingur árið 1977 og sló í gegn ári síðar þegar húnn vann níu sinnum á LPGA, þar af fimm mót í röð. Hún var valin kylfingur ársins fjórum sinnum og var tekin inn í Frægðarhöll golfsins, LPGA Hall of Fame árið 1987, þá yngsti kylfingurinn til að hljóta þann heiður.
Lopez er 69 ára og hér er nýlegt myndskeið af henni í sveiflu.


