Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Kylfingar fá fría golfkennslu í nýju ELVA greiningarkerfi
Miðvikudagur 3. júní 2026 kl. 10:03

Kylfingar fá fría golfkennslu í nýju ELVA greiningarkerfi

ELVA Golf býður kylfingum að taka þátt í þróun nýs íslensks greiningarkerfis fyrir golfkennslu og fá í leiðinni endurgjaldslausa golfkennslu. Hver þátttakandi fær 25 mínútur í kerfinu og slær alls um 20 til 25 högg með mismunandi kylfum. Í framhaldinu fær kylfingurinn persónulega innsýn í gögn og greiningu á sveiflu sinni.
Ennfremur fá fimm heppnir þátttakendur 60 mínútna einkakennslu í ELVA kerfinu með ELVA vottuðum golfkennara.
„Þetta er einstakt tækifæri fyrir kylfinga til að fá faglega greiningu á sveiflu sinni og taka um leið þátt í þróun íslenskrar tæknilausnar fyrir kylfinga.
Tíminn fer fram í húsnæði ELVA Golf á tímabilinu 11. júní til 10. júlí. Markmiðið er að auka enn frekar nákvæmni ELVA kerfisins sem notar átta háhraðamyndavélar til að greina golfsveiflu kylfinga í rauntíma,“ segir í tilkynningu frá ELVA Golf.
ELVA Golf er til húsa í Suðurhrauni 12C. Sameiginlegur inngangur með Geislatækni og tekið á móti kylfingum í anddyri.
Skráning fer fram í gegnum QR-kóða í auglýsingu eða í gegnum vefslóðina https://shorturl.at/G23mq