Karlotta vann í 22. skipti á Nesinu
Karlotta Einarsdóttir og Skarphéðinn Egill Þórisson eru klúbbmeistarar Golfklúbbs Ness 2026 en meistaramótinu lauk í gær.
Karlotta sem er sigursælasti kylfingur Nesklúbbsins lék hringina fjóra á 303 höggum, 75-75-76-79 og vann örugglega. Þetta var í 22. sinn sem hún hampar klúbbmeistaratitlinum. Önnur varð Elísabet Þóra Ólafsdóttir á 324 höggum og þriðja Elsa Nielsen á 329 höggum.
Skarphéðinn Egill Þórisson vann í meistarflokki karla en hann lék á fjórum höggum undir pari og var eini kylfingurinn sem endaði á undir pari. Hann lék á 276 höggum, 69-67-68-72.
Annar varð Ólafur Marel Árnason á höggi yfir pari 72 holurnar, 282 höggum og þriðji varð Steinn Baugur Gunnarsson á sama skori, +1.


