Japanskur sigur annað árið í röð á Opna breska kvenna
Shiho Kuwaki frá Japan sigraði á 50. AIG Opna breska kvennamótinu eftir að hafa haft betur gegn hinni þýsku Esther Henseleit í bráðabana um sigurinn á Royal Lytham & St Annes vellinum í Englandi.
Japanska stjarnan var í toppbaráttunni alla vikuna en hún lék opnunarhringinn á 66 (-5), og fylgdi því eftir með 70 (-1) og 73 (+2). Á lokadeginum hélt hún ró sinni og lék á 70 (-1) og var með forystuna í klúbbhúsinu á fimm höggum undir pari.
Hin þýska Henseleit var í lokaráshópi og var jöfn Kuwaki þegar hún átti þrjá holur eftir en fékk skolla á 16. holu. Hún jafnaði hana á toppi stigatöflunnar með mögnuðu pútti á lokaflötinni. Þær þurftu því að fara aftur á 18. holu og fengu báðar par á fyrstu umspilsholunni. Henseleit var nálægt því að klára dæmið en pútt hennar frá fimm metrum rúllaði rétt framhjá. Kuwaki bjargaði pari með frábæru innáhöggi og pútti af rúmum metra eftir að hafa lent í vandræðum eftir upphafshöggið. Þær þurftu því að fara aftur á 18. teig og þá lenti sú þýska í svipuðum vandræðum og sú japanska eftir upphafshöggið. Henseleit sló inn á flöt í þriðja höggi eftir björgun úr trjárunna og boltinn endaði um 4 metra frá en hún náði ekki að setja það ofan í. Kuwaki tvípúttaði og tryggði sér sigur og fetaði þar með í fótspor meistarans frá 2025, Miyu Yamashita sem er einnig frá Japan.
„Ég bara trúi þessu ekki! Bara það að vera á svona sviði er heiður og á hverri holu einbeitti ég mér að einu höggi í einu og reyndi bara að njóta þess eins mikið og ég gat,“ sagði Kuwaki.
„Eftir sigur Yamashita í fyrra, og að geta unnið aftur sem japanskur leikmaður er svo ótrúleg tilfinning. Ég vona að sem hluti af japanska liðinu getum við haldið áfram að lýsa upp golfheiminn og vona að allir njóti þess líka.“
„Ég er mjög ánægð með hvernig ég gaf sjálfri mér tækifæri til að vinna í dag og hvernig ég stóð mig. Ég var bara svolítið óheppin á annarri umspilsholunni. Ég reyndi virkilega mikið og ég býst við að þetta hafi bara ekki átt að vera í dag,“ sagði Henseleit.
„Það er alltaf gaman að spila gott golf og vera í baráttunni og að það skuli vera hér á Englandi, áhorfendurnir voru frábærir í dag. Þetta var bara frábær reynsla og ég naut þess virkilega. Ég mun örugglega reyna að læra af þessari reynslu og allri vikunni. Hvernig mér tókst að snúa við blaðinu í dag og það er margt sem ég get verið stolt af.
Púttið á 18. holu [í venjulegum leik] var ruglingslegt, það átti að fara frá hægri til vinstri. Síðasta metrann var það á réttri leið og ég hélt að það gæti farið í. Það var frábær stund þegar það datt ofan í.
Bandaríski kylfingurinn Yealimi Noh, sem leiddi eftir 54 holur, átti erfiðan lokadag og lék á 74 (+3) til að enda ein í þriðja sæti á fjórum höggum undir pari.
Besta golfkonaheims; Nelly Korda og Jeeno Thitikul, sú næst besta; deildu fjórða sætinu á tveimur höggum undir pari.
Sex leikmenn voru jafnir í sjötta sæti á einu höggi undir pari, þar á meðal Shannon Tan, sigurvegari á stigalista LET-mótaraðarinnar 2025, og ensku kylfingarnir Charley Hull og Lottie Woad.



