Íslandsmót í holukeppni í Leiru og Urriðavelli - spenna á báðum stöðum
Undanúrslit í holukeppni karla og kvenna hefjast klukkan átta á sunnudagsmorgni hjá körlum á Hólmsvelli í Leiru og á Urriðavelli hjá konum. Spenna er í báðum flokkum.
Karlarnir hafa verið nokkuð krefjandi aðstæðum í Leirunni þar sem norðaustan áttin hefur sent talsverðan vind yfir Hólmsvöll. Þrátt fyrir það voru góð skor í höggleiknum og Axel Bóasson úr GK lék best 36 holurnar á átta höggum undir pari 69-65 og var þremur betri en næsti maður, Gunnar Þór Heimisson úr GKG sem var á -5. Þriðji var Hákon Örn Magnússon á -4.
Í sextán manna úrslitum þurfti Axel sem hefur unnið mótið tvisvar sinnum, að lúta í lægra haldi fyrir Birni Viktori Viktorssyni frá Akranesi. Þeir voru jafnir eftir 18 holur en Skagamaðurinn fékk fugl á fyrstu bráðbanaholunni og sendi Keilismanninn heim, verulega óvænt úrslit.
Björn Viktor fékk svo í næstu umferð annan verðugan andstæðing, Guðmund Ágúst Kristjánsson, fyrrv. atvinnumann og aftur fór leikurinn á 19. holu þar sem Guðmundur tryggði sér sigur með fugli.
Í undanúrslitum leikur Guðmundur Ágúst gegn Aroni Emil Gunnarssyni frá Selfossi en hann er búinn að vera í toppbaráttunni í öllum stigamótum í sumar.
Í hinum leiknum mætir hinn ungi norðanmaður, Veigar Heiðarsson úr GA Birgi Birni Magnússyni úr Keili.
Úrslitin voru flest eftir bókinni á Urriðavelli þar sem konurnar voru í hörku baráttu. Annar undanúrslitaleikurinn er stórleikur milli atvinnukylfingingsins Guðrúnar Bráar Björgvinsdóttur úr Keili og Perlu Sólar Sigurbrandsdóttur úr GR. Þær unnu báðar sína leiki sannfærandi. Guðrún varð holumeistari 2017 og 2021 en Perla Sól vann 2023.
Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Suðurnesjakonan Fjóla Margrét Viðarsdóttir úr GS og Heiða Rakel Rafnsdóttir.

Perla Sól er í undanúrslitum og leikur gegn Guðrúnu Brá.


