Hver vinnur stærsta mót ársins á PGA?
Bandaríkjamaðurinn Wyndham Clark kemur sjóðheitur inn í lokamót FedEx úrslitakeppninnar eftir sigur á BMW mótinu um síðustu helgi. Hann háði harða baráttu við Rory Mcilroy en sýndi styrk sinn á síðustu níu holunum eftir að hafa tapað niður fimm högga forskoti á Norður Írann.
Lokamótið verður á East Lake velllinum í Atlanta í þessari viku og stærstu verðlaun PGA-tímabilsins eru í húfi, tíu milljónir dollara eða tæplega 1300 milljónir króna. Á TOUR Championship-mótinu keppa 30 efstu kylfingarnir á FedExCup-stigalistanum árið 2026 og það eitt að komast inn á mótið þýðir að leikmaður á möguleika á að vinna FedExCup-bikarinn í ár. Allir hefja leik á jöfnu pari á fimmtudagsmorgun.
Fyrir hópnum fer Scottie Scheffler, sem heldur inn í TOUR Championship-mótið fimmta árið í röð í efsta sæti FedExCup-stigalistans.
Þrátt fyrir einstaklega stöðuga frammistöðu Schefflers undanfarna átta mánuði getur hvaða leikmaður sem er af þeim 30 sem keppa unnið stærstu verðlaun mótaraðarinnar.
Hér er allt annað sem þú þarft að vita þegar mótaröðin snýr aftur í East Lake-golfklúbbinn.
Hér er smá upptalning um nokkra af þeim þrjátíu sem keppa um stærstu peningaverðlaunin á PGA:
Þrír kylfingar komust inn á TOUR Championship-mótið með árangri sínum á BMW Championship-mótinu.
Gary Woodland, sem endaði í jöfnu 4. sæti, færði sig úr 31. sæti í það 18. og mun keppa á TOUR Championship-mótinu í fyrsta sinn síðan 2019. Patrick Cantlay færði sig úr 43. sæti í það 19. eftir að hafa endað einn í öðru sæti þökk sé fuglum á síðustu þremur holunum á sunnudag.
Skotinn Robert MacIntyre stökk úr 36. sæti í það 25. eftir að hafa endað í jöfnu sjöunda sæti aðeins viku eftir að hann dró sig úr FedEx St. Jude Championship-mótinu og greindi frá því að hann væri með blöðru í hægra hné. Hann keppir í lokamótinu í annað sinn.
Kurt Kitayama, Rickie Fowler og Bud Cauley duttu út af topp 30 listanum. …
Tommy Fleetwood heldur inn í lokamótið í 9. sæti stigalistans og stefnir á að verða fyrsti kylfingurinn til að verja titilinn.
Tveir nýliðar komust inn á mótið, þeir Kristoffer Reitan og Alex Fitzpatrick. Hinir eru Ryan Gerard, Min Woo Lee, Alex Smalley og Ryan Fox.
Rory McIlroy keppir á sínu níunda í röð. McIlroy stefnir á að verða fyrsti kylfingurinn til að vinna FedExCup-bikarinn fjórum sinnum.
Wyndham Clark færði sig upp í 3. sæti FedExCup-stigalistans eftir þriðja sigur sinn á tímabilinu á sunnudag á BMW Championship-mótinu. Clark stefnir á að verða fyrsti kylfingurinn síðan Hovland árið 2023 til að vinna BMW Championship- og TOUR Championship-mótin tvær vikur í röð.
Í 30. sæti stigalistans er enginn annar en Nýsjálendingurinn Ryan Fox sem sigraði á OPNA mótinu á Royal Birkdale í júlí. Hann er að keppa á mótinu í fyrsta sinn.
Scheffler, sem hefuer verið í toppsæti heimslistans undanfarin ár, hefur unnið FedEx bikar einu sinni, árið 2024.
East Lake völllurinn sem er elsti golfvöllurinn í Atlanta var heimavöllur Bobby Jones, fyrsta stórkylfings heims.
Þátttakendalistinn á lokamótinu.
Wyndham Clark sigraði á US Open í júní og sigurinn á BMW var þriðji titilinn á þessu ári hjá kappanum.



