Hulda þriðja eftir fyrsta hring í Slóvakíu
Hulda Clara Gestsdóttir atvinnukylfingur úr GKG á LETAS mótaröðinni í Evrópu er jöfn í þriðja sæti eftir fyrsta keppnisdag á Ladies Slovak Open mótinu á Tale Ski Golf golfsvæðinu í Slóvakíu.
Hulda lék á tveimur yfir pari en aðeins einn keppnadi er á undir pari, forystusauðurinn Michaela Vavrova.
Hringurinn hjá Huldu var nokkuð litríkur. Hún fékk fjóra fugla, fjóra skolla og einn tvöfaldan skolla, 74 högg.
Andrea Bergsdóttir lék hringinn á fjórum yfir pari. Hún var á pari eftir tíu holur en fékk svo tvo tvöfalda skolla, bætti við einum skolla og einum fugli til að enda á 76 höggum. Hún er jöfn í 27. sæti en aðeins fimm höggum frá efsta sætinu.



