Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Hreyfingarlaust golf hjá GR
Föstudagur 5. júní 2026 kl. 16:37

Hreyfingarlaust golf hjá GR

Golfklúbbur Reykjavíkur hefur gefið út nýjar staðarreglur en þær kveða á um að leikið verði hreyfingarlaust golf. Nýju reglurnar ganga yfir báða 18 holu velli klúbbsins; Grafarholti og á Korpúlfsstaði. Nú eru hreyfingar ekki leyfðar, hvorki á flötum né á snöggslegna almenna svæðinu.

„Við vekjum athygli kylfinga á því að það er ábyrgð hvers og eins leikmanns að kynna sér ávallt staðarreglur þess vallar sem spilaður er. Hlekki á allar staðarreglur má finna í frétt á heimasíðunni okkar ásamt öðru gagnlegu efni frá GSÍ, hlekkur á fréttina er í fyrstu athugasemd,“ segir á heimasíðu GR.

Ekki er ólíklegt að fleiri klúbbar fylgi í kjölfarið.