Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Hörku keppni á Íslandsmóti öldunga í Kiðjabergi
Verðlaunahafar á Íslandsmóti öldunga 2026. Mynd/Valur Jónatansson.
Sunnudagur 19. júlí 2026 kl. 10:38

Hörku keppni á Íslandsmóti öldunga í Kiðjabergi

Það var hörku keppni á Íslandsmóti öldunga sem fram fór á Kiðjabergsvelli 16.-18. júlí. Þórdís Geirsdóttir, Sigurbjörn Þorgeirsson, Guðrún Garðars og Gauti Grétarsson fögnuðu Íslandsmeistaratitlum eldri kylfinga 2026.

Vinkonurnar Þórdís og Ragnheiður háðu skemmtilega keppni um sigurinn í 50+ kvenna. Þórdís lék langbest í fyrsta hring og náði að halda forystusætinu út mótið. Þórdís sigraði í ellefta skipti af síðustu tólf en Ragnheiður truflaði sigurgönguna fyrir nokkrum árum í Sandgerði.

Það var mikil spenna og margir í baráttunni í 50+ karla. Sigurbjörn Þorgeirsson stóð uppi sem sigurvegari, ekki í fyrsta sinn, eftir hörku baráttu við Jón Snorra Halldórsson úr GR og Jón Karlsson úr GR. Jón Snorri var með forystu þegar sex holur voru eftir en Sigurbjörn hafði betur í lokin og vann með tveimur höggum.

Það var líka hörku keppni í kvennaflokki 65+. Guðrún Garðars úr GR endaði að lokum sem sigurvegari með þremur höggum. Önnur varð Steinunn Sæmundsdóttir og þriðja María Málfríður Guðnadóttir.

Það var einungis í karlaflokki 65+ þar sem engin spenna var um sigurinn. Gauti Grétarsson úr NK sýndi allar sínar bestu hliðar og kláraði á frábæru skori (+4) og vann með þrettán högga mun. Annar varð Kristján V. Kristjánsson úr Keili og þriðji Brynjar Harðarson úr GR.

Hér má sjá myndskeið af lokaholli karla í 50+ sem Hlöðver Guðnason tók og birti.