Hlíðavöllur opnar fyrir félagsmenn
Hlíðavöllur í Mosfellsbæ er fyrsti völlurinn á höfuðborgarsvæðinu til að opna á þessu vori en það verður á mánudaginn 11. maí, þó eingöngu fyrir félagsmenn til að byrja með.
„Veðurspáin er mjög hagstæð um helgina, góður hiti og talsvert af vætu. Við ætlum því að gefa vellinum helgina til þess að jafna sig eftir þennan kuldakafla síðustu daga. Völlurinn lítur virkilega vel út og mun taka vel á móti ykkur á mánudaginn,“ segir í færslu Golfklúbbs Mosfellsbæja


